Sumarið búið eða alla vega sumarfríið

Jæja já, nú er sumarfríið búið fyrir löngu, ég strax orðin þreytt á vinnunni aftur og farin að hlakka til haustfrísins, og svo er ég búin að smitast af einhverri leiðinlegri pest! Þá veit ég að sumarfríið er búið!

En við erum búin að eiga gott sumar! Þrátt fyrir að hafa ekki búist við neinum gestum vegna kreppunnar, vorum við með fullt hús gesta allt sumarfríið, fyrir utan þá viku sem við stungum af til Prag! Ótrúlega gaman að hafa getað tekið á móti svona mörgum gestum, og hafa hitt svona marga heimanað þrátt fyrir að tíma ekki sjálf að fara til Íslands í sumarfríinu.
Hrannar vinur Bobbýs var svo hjá mér í heilan mánuð, núna í ágúst og fór á laugardaginn, og á sama tíma fóru 2 seinustu næturgestir sumarsins, og þrátt fyrir að hafa hlakkað til að sumu leiti að vera ein í húsinu og geta slappað af, þá var nú bara hálf tómlegt allt í einu! Enginn nema ég í húsinu og ekki von á neinum “heim” fyrr en Bobbý kemur á fimmtudag. En ég er samt alveg ótrúlega fegin að við verðum gestalaus meðan Bobbý verður heima. Okkur veitir ekkert af smá tíma fyrir okkur tvö;)

En við erum strax farin að plana næsta frí: Haustfríið. Bobbý fer til Íslands 5. október, og ég 9. okt. og við verðum til 18. Við ætum að kíkja á litla kútinn þeirra Valdísar og Ásgeirs, ásamt því að hitta sem flesta vini og ættingja.
19. október (daginn eftir að við komum frá íslandi) förum við svo til Kanada. Bobbý í flughermi og próf og ég að versla! Get vonandi “sparað” smá fyrir brúðkaupið með því að kaupa hitt og þetta í Kanada.

Ég er búin að senda e-mail til að reyna að bóka Félagsheimilið á Blönduósi fyrir brúðkaupið en hef ekki fengið neitt svar. Ég er að verða heldur óþolinmóð, og er þess vegna að hugsa um að fara að hringja og heyra hvort salurinn sé laus þann dag sem við viljum gifta okkur. Annars þurfum við að reyna að finna nýja dagsetningu!

En þar sem að ég hef sett allar fréttir af mér jafn óðum inn á facebook, þá hef ég ekki meira að segja í bili. Ég ætla samt að reyna að vera duglegri að blogga en ég hef verið í sumar. Veit að pabba finnst það svo skemmtilegt :)

Hafið það gott!
Hilsen fra Virum
Hulda

5 svör to “Sumarið búið eða alla vega sumarfríið”

  1. pabbi segir:

    Takk fyrir bloggið Hulda mín, þú ættir að prófa að senda póst á bæjarskrifstofuna á Blönduósi, þeir benda þér þá allavega á húsvörðinn. Það virðist nenfilega stundum gleymast að breyta nr. í símaskrá og öðrum upplýsingum. Er svo strax farinn að hlakka til að sjá ykkur í október. Knús pabbi

  2. hulda drofn segir:

    Ég var búin að vera í sambandi við hann í vor, svo ég er með rétt e-mail, en ég hringi í hann í dag ef ég heyri ekkert! Vil fara að bóka kirkjuna og gististaðina ef salurinn er laus þessa helgi :)

    En við erum líka orðin voða spennt að koma heim:) Hlakka til!

  3. Valdís segir:

    sko pabbi er ekkert einn um það að hafa gaman af blogginu þínu! bara láta þig vita;)
    vona að þú sért búin að fá eitthvað svar frá Blönduósingnum, þessir húnvetningar… djók

    hlakka voðalega voðalega voðalega mikið til að hitta ykkur!! knús Valdís og Róbert Huldar;)

  4. karen segir:

    Ég hef líka gaman af að lesa bloggið þitt! Mér þykir þú dugleg að skrifa.

  5. Auður segir:

    Ég hef líka ótrúlega gaman af því að lesa bloggið þitt :) Er búin að kíkja oft í sumar og vonast eftir því að það væri komið blogg!

    Já og Valdís, mér finnst að þú ættir virkilega að pæla í nafninu Róbert Huldar….. ofur töff ;) thíhí

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.